21.08.16 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
James Wilson til Derby County (Staðfest)

Wilson er farinn á láni til Derby

Mynd: Getty Images

Wilson er farinn á láni til Derby

Mynd: Getty Images
Manchester United hefur ákveðið að lána sóknarmanninn unga James Wilson til Derby County í Championship-deildinni út þetta leiktímabil.
Hinn 20 ára gamli Wilson var megnið af síðasta tímabili í láni hjá Brighton og hann hjálpaði liðinu að komast í umspilið um sæti í ensku úrvalsdeildinni með því að skora fimm mörk í 28 leikjum. Brighton tapaði svo í undanúrslitum umspilsins fyrir Sheffield Wednesday.

Hann mun nú snúa aftur í Championship-deildina og spila með Derby sem hefur farið nokkuð brösulega af stað. Liðið hefur átt í vandræðum með að skora mörk og þar getur Wilson væntanlega hjálpað.
„Hann er orkumikill leikmaður sem mun bæta kosti okkar sóknarlega,\" sagði Nigel Pearson, stjóri Derby, við heimasíðu félagsins.
Wilson lék síðast fyrir aðallið Manchester United í október á síðasta ári.

Heimild: BBC