Fotbolti.net
21.08.17 - 18:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Kondogbia lánaður til Valencia (Staðfest)

Kondogbia lánaður til Valencia (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Spænska úrvalsdeildarfélagið Valencia hefur fengið franska miðjumanninn Geoffrey Kondogbia á láni frá Inter Milan.

Valencia hefur forkaupsrétt á Kondogbia eftir tímabilið.
Miklar vonir voru bundnar við Kondogbia hjá Inter þegar þeir borguðu Mónakó 30 milljónir evra fyrir hann fyrir tveimur árum.

Hann spilaði 26 leiki í Seríu A á sínu fyrsta tímabili og 24 leiki á síðasta tímabili. Hann var þó ekki inn í myndinni hjá nýjum stjóra Inter, Luciano Spalletti, fyrir þetta tímabil.

Spalletti hefur fengið miðjumennina Borja Valero og Matias Vecino og Kondogbia hefur fallið neðar í goggunarröðinni.

Kondogbia hefur því verið lánaður til Valencia, en hann þekkir vel til í spænska boltanum eftir að hafa áður spilað með Sevilla.

Official Statement I Geoffrey Kondogbia #SomKondogbia
👉https://t.co/QjHeICZyO2 pic.twitter.com/2FrAFtdxoE

— Valencia CF English (@valenciacf_en) August 21, 2017

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.