Fotbolti.net
21.08.17 - 12:37
Magnús Már Einarsson

Nasri til Antalyaspor (Staðfest)

Nasri til Antalyaspor (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Tyrkneska félagið Antalyaspor hefur keypt miðjumanninn Samir Nasri frá Manchester City.

Hinn þrítugi Nasri hefur verið úti í kuldanum hjá Pep Guardiola, stjóra City, en á síðasta tímabili var hann í láni hjá Sevilla á Spáni.

Nasri hefur nú skrifaði undir tveggja ára samning hjá Antalyaspor.

Nasri lék samtals 129 leiki í ensku úrvalsdeildinni með Manchester City eftir að hann kom til félagsins frá Arsenal á 25 milljónir punda árið 2011.
Hjá Antalyaspor mun Nasri spila með Samuel Eto\'o, fyrrum framherja Barcelona, en hann er fyrirliði liðsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.