Fotbolti.net
21.08.26 - 11:11
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Stjarnan horfði í aðra þætti en stigasöfnunina

Stjarnan horfði í aðra þætti en stigasöfnunina
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stjarnan greindi í gær frá þeirri ákvörðun að Jón Þór Hauksson hefði verið látinn fara frá félaginu eftir rúma tvo mánuði í starfi. Ekkert frekar var sagt í tilkynningunni.

Þeir Brynjar Kristmundsson og Olgeir Sigurgeirsson, sem mynda þjálfarateymi venslaliðsins KFG, og Hákon Ernir Haraldsson munu stýra liðinu út tímabilið, en þeir höfðu allir verið aðstoðarmenn Jóns Þórs.
Stormasamt á bak við tjöldin í Garðabæ
TENGT EFNI

Stormasamt á bak við tjöldin í Garðabæ

Fótbolti.net tók saman í gær að stigasöfnun Stjörnunnar undir stjórn Jóns Þórs hefði verið betri en hjá forvera hans Jökli Elísabetarsyni, en Garðbæingar horfa samkvæmt heimildum Fótbolta.net í aðra þætti þegar ákvörðunin var tekin.

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net sinnti Jón Þór starfi sínu ekki eins og honum bar að gera, uppfyllti ekki þær kröfur sem Stjarnan setti til hans. Það hefur spurst út að hann mætti ekki á allar æfingar liðsins, hafi farið snemma af æfingu og hafi ekki náð til leikmanna. Heyrst hefur að á köflum hafi þurft að sannfæra ákveðna leikmenn um að mæta á æfingar og í leiki.

Þá kom upp atvik eftir leik þar sem Jón Þór hafði fengið gult spjald. Þá birti Stúkan upptöku af atvikinu úr Spiideo vél og Jón Þór sakaði samstarfsmann um að hafa lekið því. Það hafði ekki sérstaklega góð áhrif á stemninguna.
Stjarnan horfði í aðra þætti en stigasöfnunina
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.