21.09.16 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Hættur hjá Dortmund til að taka við Stuttgart (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images

Hannes Wolf er búinn að segja upp starfi sínu í þjálfarateymi Borussia Dortmund til að taka við Stuttgart, sem spilar í þýsku B-deildinni.
Wolfs er aðeins 35 ára gamall en hefur gengið frábærlega með yngri flokka Dortmund þar sem hann er búinn að stýra U17 og U19 liðum félagsins til sigurs undanfarin þrjú tímabil.
Wolfs er aðeins 35 ára gamall en hefur gengið frábærlega með yngri flokka Dortmund þar sem hann er búinn að stýra U17 og U19 liðum félagsins til sigurs undanfarin þrjú tímabil.
„Við höfum mikla trú á því að Hannes Wolf henti Stuttgart mjög vel. Wolf er mikils metinn innan knattspyrnuheimsins og okkur hlakkar til að starfa með honum,\" sagði Jan Schindelmeiser, yfirmaður íþróttamála hjá Stuttgart.
Wolf verður kynntur opinberlega sem nýr þjálfari félagsins á fréttamannafundi í fyrramálið.
Wolf verður kynntur opinberlega sem nýr þjálfari félagsins á fréttamannafundi í fyrramálið.
