21.09.16 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Valencia búið að reka Pako (Staðfest)

Pako starfaði með Benitez í rúman áratug.

Mynd: Getty Images

Þjálfaravandræði Valencia virðast engan endi ætla að taka en félagið rak Pako Ayestaran úr stjórastólnum í gærkvöldi.
Valencia er búið að tapa fjórum fyrstu leikjum tímabilsins og er stigalaust á botninum, en Pako er fjórði aðalþjálfari félagsins á síðustu tíu mánuðum.

Pako var aðstoðarþjálfari Rafael Benitez í ellefu ár og fylgdi portúgalska stjóranum allt frá Osasuna að Liverpool við góðan orðstýr.
Pako tók við Valencia í lok mars þegar Gary Neville var rekinn og er því aðeins búinn að vera við stjórnvölinn í tæplega sex mánuði.