Fotbolti.net
21.09.16 - 15:00
Magnús Már Einarsson

Wes Brown til Blackburn (Staðfest)

Wes Brown til Blackburn (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Blackburn Rovers hefur gert samning við Wes Brown, fyrrum leikmann Manchester United.

Hinn 36 ára gamli Brown skrifaði undir samning sem gildir út tímabilið.

Brown hefur verið samningslaus síðan hann yfirgaf herbúðir Sunderland í sumar.
Brown var mikilvægur hlekkur í liði Manchester United sem vann tvennuna 2008. Hann lék 52 leiki það tímabilið og lagði upp mark fyrir Cristiano Ronaldo í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu.

Blackburn er í næstneðsta sæti ensku Championship-deildarinnar en liðið er með fimm stig eftir átta leiki.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.