Fotbolti.net
21.09.20 - 14:02
Elvar Geir Magnússon

Rúnar Alex gæti verið með Arsenal gegn Leicester á miðvikudag

Rúnar Alex Rúnarsson.

Rúnar Alex Rúnarsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Markvörðurinn Rúnar Alex Rúnarsson mun ganga í raðir Arsenal í dag og gæti verið í hóp á miðvikudaginn þegar Arsenal mætir Leicester í deildabikarnum.

Þetta segir Goal.com en Arsenal mun tilkynna Rúnar Alex í dag samkvæmt fréttum.
Íslenski markvörðurinn kom til Englands á föstudag og æfði með Arsenal um helgina en verið er að kaupa hann frá Dijon í Frakklandi.

Arsenal seldi vararmarkvörðinn Emiliano Martínez til Aston Villa á 20 milljónir punda. Kaupverðið á Rúnari Alex er sagt rúmlega ein milljón punda.

Rúnar Alex er 25 ára og þekkir markvarðaþjálfara Arsenal, Inaki Cana, mjög vel. Þeir unnu saman hjá Nordsjælland.

Bernd Leno er aðalmarkvörður Arsenal og Matt Macey hefur byrjað tímabilið sem varamarkvörður en hann gæti verið á förum.

Arsenal hefur einnig verið að skoða David Raya, markvörð Brentford, en það ætti að skýrast á næstu vikum hvort Rúnar verði varamarkvörður Arsenal eða þriðji markvörður.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.