Bergdís Fanney Einarsdóttir er gengin til liðs við Val frá ÍA. Bergdís hefur leikið allan sinn meistaraflokksferil fyrir ÍA.
ÍA endaði í 3. sæti Inkasso deildarinnar í sumar en Fylkir og Keflavík tryggðu sér sæti í Pepsideildinni.
Bergdís sem er fædd árið 2000 skoraði fimmtán mörk í átján leikjum fyrir ÍA í sumar. Þrátt fyrir ungan aldur á hún 57 meistaraflokksleiki en hún hefur skorað í þeim 22 mörk.
Bergdís á 25 leiki fyrir yngri landslið Ísland og hefur hún gert sex mörk í þeim.
Knattspyrnudeild Vals og Bergdís gerðu þriggja ára samning.
Valur endaði í 4. sæti deildarinnar en Pétur Pétursson þjálfari liðsins ætlar sér eflaust stærri og betri hluti á næsta tímabili.
Athugasemdir