21.10.26 - 09:44
Elvar Geir Magnússon
Tveir úr neðri hlutanum komust í lið ársins

Jökull Andrésson, markvörður FH.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tryggvi Hrafn Haraldsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jökull Andrésson, markvörður FH.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fótbolti.net opinberaði í vikunni lið ársins í Bestu deild karla. Tveir leikmenn sem eru í liðinu koma úr liðum sem enduðu í neðri hluta deildairnnar eftir tvískiptinguna.
Í markinu er Jökull Andrésson markvörður FH. Þjálfarinn Jóhannes Karl Guðjónsson gagnrýndi hann opinberlega eftir jafntefli gegn ÍBV í sumar. Ummæli sem voru umdeild en Jökull tók gagnrýnina á kassann og fór í ham milli stanganna hjá FH.
„Ef ég get komið með einhver skilaboð á markmenn þá er það að ein mistök skilgreina þig ekki sem markmann. Við erum hetjur eða illmenni, svona er þetta bara," sagði Jökull í frægu viðtali í sumar.
Jökull ver að meðaltali 3,4 skot í leik og hefur haldið fimm sinnum hreinu á tímabilinu.

TENGT EFNI
Stórbætti stoðsendingametið - „Búinn að heyra um þetta met margoft frá Adam Ægi vini mínum"
Hinn leikmaðurinn úr neðri hlutanum er svo Tryggvi Hrafn Haraldsson í Val en hann bætti stoðsendingamet deildarinnar. Tryggvi er á leið heim í ÍA en hann var í ítarlegu viðtali við Fótbolta.net í gær.

Tryggvi Hrafn Haraldsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

TENGT EFNI
Úrvalslið ársins í Bestu deildinni 2026

TENGT EFNI
Jökull með skilaboð - „Við erum hetjur og við erum illmenni"
Innkastið - Yrði dýrasta liðið til að falla

Mynd: Elvar Geir Magnússon