Skoraði sína fyrstu tvennu í meistaraflokki - „Hef lært helling af Lárusi"

Seinna markinu fagnað á mánudag.

Mynd: BerndsenPhoto

Hitti boltann mjög vel í fyrra markinu og boltinn endaði í markinu.

Mynd: BerndsenPhoto

Rafael Máni kom ÍA yfir undir lokin og Viktor Jónsson innsiglaði sigurinn.

Mynd: BerndsenPhoto

Hefur átt gott tímabil í hjarta varnarinnar hjá ÍA.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lárus Orri hefur stýrt ÍA síðustu 18 mánuði.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Seinna markinu fagnað á mánudag.

Mynd: BerndsenPhoto
Baldvin, sem er 22 ára miðvörður, hefur nú skorað þrjú mörk í sumar og skoraði tvö mörk í fyrra. Hann ræddi við Fótbolta.net.
„Mér líður bara mjög vel með leikinn. Mér fannst þetta klaufalegt að fá á okkur þetta jöfnunarmark en við sýndum mikinn karakter að klára þetta undir lokin og það gerði sigurinn enn sætari," segir Baldvin.
„Auðvitað viljum við enda eins ofarlega og hægt er og stefnan hefur verið í síðustu leikjum að ná 4. sætinu, en fyrst og fremst erum við að einbeita okkur að því að vinna okkar leiki og klára tímabilið sterkt."
Fyrra markið sætara
Þú skorar tvö mörk í leiknum, það fyrra hamar af löngu færi og seinna var skallamark, hvort er í meira uppáhaldi?
„Það er alltaf gaman að skora og hvað þá tvö mörk í sama leik. Ég verð nú að segja fyrra markið hafi verið aðeins sætara þvi það er ekki á hverjum degi sem þú hittir hann svona vel, en aftur á móti geggjað að skora síðan aftur."
Pabbi alltaf hvatt mig til að láta vaða
Þessi hamar, ekki sá fyrsti frá þér, hvaðan kemur þetta? Hefur þú alltaf getað lúðrað á markið? Eru menn hættir að öskra 'ekki skjóta'?
Baldvin hló áður en hann svaraði spurningunum.
„Ég hef alltaf vitað að ég get skotið og er mjög skotviss. Ég held það sé pabba mínum að þakka að einhverju leyti, hann hefur sagt við mig frá því að ég var lítill að skjóta alltaf ef ég kemst í þá stöðu að skjóta. Ég fæ sjaldan að heyra það að “ekki skjóta”, held það sé meira að menn séu að peppa mig í að skjóta því menn vita hvað ég get."
Hefur bætt sig mikið frá því að hann kom
Rafael Máni Þrastarson skoraði sitt fyrsta mark fyrir ÍA gegn Fram. Hann, líkt og Baldvin, kom í ÍA frá Fjölni. Gaman að sjá þennan efnilega leikmann komast á blað?
„Já, algjörlega. Ég þekki Rafael mjög vel síðan við vorum saman í Fjölni og veit alveg hvað hann getur. Hann er búinn að koma mjög vel inn í hópinn og hefur bætt sig mjög mikið frá því að hann kom. Mjög gaman að sjá hann fá tækifærið og nýta það svona vel. Virkilega vel að þessu kominn."
Hef lært helling af Lárusi
Að lokum, það hefur verið þessi umræða um þjálfaramálin hjá ÍA að Lárus Orri verði mögulega ekki áfram. Hvernig sér þetta við þér? Hvernig hefur verið að spila undir stjórn Lárusar? Hann er fyrrum atvinnu- og landsliðsmaður og spilaði sem hafsent, er hann reglulega að koma með ráð?
„Ég veit nú ekkert meira en það sem hefur komið fram í fjölmiðlum og hef ekkert verið að spá mikið í þessu. En mér hefur fundist gott að spila undir stjórn Lárusar og hef lært helling af honum. Hann hefur auðvitað mikla reynslu sem varnarmaður og er duglegur að gefa mér ráð og benda mér á litlu hlutina sem maður getur gert betur. Það er mjög gott að hafa mann með svona mikla reynslu til að læra af," segir Baldvin.

Hitti boltann mjög vel í fyrra markinu og boltinn endaði í markinu.

Mynd: BerndsenPhoto

Rafael Máni kom ÍA yfir undir lokin og Viktor Jónsson innsiglaði sigurinn.

Mynd: BerndsenPhoto

Hefur átt gott tímabil í hjarta varnarinnar hjá ÍA.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lárus Orri hefur stýrt ÍA síðustu 18 mánuði.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
