21.11.12 - 19:29
Daníel Freyr Jónsson
Rafael Benítez tekinn við Chelsea (Staðfest)

Rafa Benitez.

Mynd: Getty Images

Rafa Benitez.

Mynd: Getty Images
Spánverjinn Rafael Benitez hefur samþykkt að taka við stjórastöðunni hjá Chelsea og mun stýra liðinu út leiktíðina.
Benitez tekur þar við af Roberto Di Matteo sem rekinn var í morgun eftir slakt gengi liðsins undanfarnar vikur.
Ráðningin markar endurkomu Benitez í enska boltann, en hann stýrði Liverpool í sex ár á árunum 2004-2010. Hann tók síðan við Inter en var rekinn þaðan hálfu ári síðar.
Hann hefur því verið án starfs frá því í desember 2010 en er nú orðinn níundi þjálfari liðsins frá því Roman Abramovich keypti félagið árið 2003.
Fyrsti leikur Chelsea undir stjórn Benitez verður gegn Englandsmeisturum Manchester City um helgina, en þar næst taka við Lundúnarslagir gegn Fulham og West Ham.