21.11.12 - 08:57
Daníel Freyr Jónsson
Roberto Di Matteo rekinn frá Chelsea (Staðfest)

Roberto Di Matteo.

Mynd: Getty Images

Roberto Di Matteo.

Mynd: Getty Images
Roberto Di Matteo hefur verið rekinn sem stjóri Chelsea, en þetta var félagið að staðfesta nú rétt í þessu.
Illa hefur gengið hjá Chelsea í undanförnum leikjum og slæmt 3-0 tap gegn Juventus í Meistaradeildinni í gærkvöldi hefur stillt Evrópumeisturunum upp við vegg í riðlakeppninni.
Liðið þarf að treysta á að Shakhtar leggi Juventus að velli og vinna síðan sinn leik gegn Nordsjaelland í síðustu umferð riðlakeppninnar.
Þá hefur liðinu einnig verið að ganga illa í deldinni og er án sigurs í síðustu fjórum leikjum og er nú fjórum stigum á eftir toppliði Manchester CIty eftir að hafa verið í toppsætinu framan af á tímabilinu.
Di Matteo tók við liðinu fyrr á þessu ári eftir að Andre Villas-Boas var sagt upp störfum, en Ítalinn var aðsoðarstjóri Villas-Boas. Hann gerði Chelsea að Bikarmeisturum og Evrópumeisturum á sínu fyrsta tímabili, en nú er ljóst að Roman Abramovich leit alltaf á hann sem tímabundinn stjóra og hefur sagt honum upp við fyrsta tækifæri.
,,Gengi liðsins undanfarið og úrslit hafa ekki verið nægilega góð og eigandinn og stjórnin telja að breytinga var þörf núna til að sjá til þess að félagið væri á leið í rétta átt þar sem framundan er mikilvægur hluti af tímabilinu,\" segir meðal annars í yfirlýsingu frá Chelsea.
Talið er að Chelsea muni nú gera harða atlögu til að fá Pep Guardiola, en þá var Rafael Benitez orðaður við liðið í morgun.

Heimild: Heimasíða Chelsea