21.11.16 - 20:22
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Klinsmann rekinn sem þjálfari Bandaríkjanna (Staðfest)

Klinsmann er búinn að missa starfið

Mynd: Getty Images

Klinsmann er búinn að missa starfið

Mynd: Getty Images
Það er búið að reka Jurgen Klinsmann úr starfi landsliðsþjálfara Bandaríkjanna, en frá þessu var greint nú fyrir stuttu. Brottreksturinn kemur eftir tvö töp í röð í undankeppni HM.
Klinsmann tók við liðinu af Bob Bradley, núverandi stjóra Swansea, árið 2011 og náði að koma Bandaríkjunum í 16-liða úrslit á HM 2014, en auk þess bandaríska liðið fjórða sæti í Suður-Ameríkukeppninni á heimavelli í sumar.

Árangurinn upp á síðkastið hefur hins vegar ekki verið nægilega góður og eftir töp gegn Mexíkó og Kosta Ríka í undankeppni HM var tekin sú ákvörðun að segja þýska þjálfaranum upp störfum.
Óljóst er hver mun taka við starfinu af Klinsmann, en líklegt þykir að það verði Bandaríkjamaður.
Bandaríkjamenn eru eins og staðan er núna í síðasta sæti í riðli sínum í undankeppni HM, en næst á dagskrá eru leikir gegn Hondúras og Panama í mars. Bandaríkin leika í sex liða riðli í Norður-Ameríku, en þar fara þrjú efstu liðin beint á mótið og fjórða sætið fer í umspil.
Aron Jóhannsonn hefur leikið með bandaríska landsliðinu undanfarin ár, en það var Klinsmann sem gaf honum fyrst tækifæri.

BREAKING: U.S. Soccer announces it’s parted ways with #USMNT HC Jurgen Klinsmann pic.twitter.com/oKIdxZahHi
— Bleacher Report (@BleacherReport) November 21, 2016