Fotbolti.net
21.11.16 - 23:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Kristín Ýr ráðin aðstoðarþjálfari Vals (Staðfest)

Kristín Ýr verður aðstoðarþjálfari Vals næsta sumar

Kristín Ýr verður aðstoðarþjálfari Vals næsta sumar

Canon

Mynd: Knattspyrnudeild Vals

Kvennaboltinn
Kristín Ýr Bjarnadóttir hefur verið ráðin aðstoðarþjálfari hjá kvennaliði Vals. Kristín Ýr skrifaði undir tveggja ára samning við knattspyrnudeild Vals.

Kristín Ýr þekkir vel til á Hlíðarenda, en hún á að baki 183 leiki fyrir meistaraflokk kvenna hjá Vals. Nú kemur hún til með að stíga á hliðarlínuna.
„Það sem heillar mig alltaf er Valur. Nú þegar ég hef verið leikmaður í klúbbnum í 20 ár er ferillinn á enda og ný verkefni taka við. Ég er svo heppin að geta haldið áfram að vera hluti af þessu frábæra liði sem þjálfari og fyrir það er ég ótrúlega þakklát. Að ná árangri með Val er það sem ég þrái í dag og alla daga,\" sagði Kristín Ýr eftir að hafa skrifað undir samning.

„Komandi tímabil leggst rosalega vel í mig. Ég finn fyrir ferskum anda í liðinu og miklum metnaði. Úlfur hefur komið með rosalegan meðbyr með sér. Mér datt ekki í hug að ég myndi taka að mér þjálfun á þessu stigi, en hann náði að smita mig af þvílíkum metnaði og áhuga frá fyrsta fundi.\"

„Við höfum verið á uppleið síðustu misseri og ég trúi því að við höldum áfram - hærra. Hugarfar leikmanna og metnaður er einnig á hæsta leveli. Þar sem Valur á heima.
Pepsi skórnir eru komnir alveg á hilluna. Nú verða það bara Copa Mundial í boðvanginum. Sjáum til með aðrar skótegundir þegar sólin fer að skína og stirðir liðir mýkjast. En þjálfunin er númer 1,2 og 3 núna,\"
sagði Kristín Ýr að lokum við Val.is.

Úlfur Blandon tók við Valskonum í síðasta mánuði og nú er það ljóst að Kristín Ýr verður honum til aðstoðar. Valur lenti í þriðja sæti Pepsi-deildarinnar í sumar, en stefnan er sætt hærra á Hlíðarenda á næsta tímabili.

Heimild: Valur.is

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.