21.11.18 - 21:31
Ívan Guðjón Baldursson
Ágúst Leó og Lárus í Þrótt R. (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir

Mynd: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir
Þróttur R. var að ganga frá félagaskiptum á tveimur bræðrum sem eru uppaldir hjá Stjörnunni.
Ágúst Leó Björnsson er eldri bróðirinn. Hann er fæddur 1997 og skoraði eitt mark í átta leikjum fyrir ÍBV í Pepsi-deildinni í sumar. Hann var svo lánaður til Keflavíkur síðari hluta sumarsins en fékk lítið af tækifærum.
Lárus Björnsson er fæddur 2000 og á enga opinbera meistaraflokksleiki að baki.
Bræðurnir eru báðir sóknarmenn og skrifa undir þriggja ára samninga, sem gilda út sumarið 2021.
„Við fögnum komu piltanna í Þrótt og bjóðum þá velkomna til leiks í Laugardalinn," segir í Twitter færslu Þrótts R.

Bræður semja við Þrótt
— Þróttur (@throtturrvk) November 21, 2018
Bræðurnir Ágúst Leó og Lárus Björnssynir hafa gengið til liðs við Þrótt og skrifað undir samninga við félagið sem gilda út keppnistímabilið 2021.
Við fögnum komu piltanna í Þrótt og bjóðum þá velkomna til leiks í Laugardalinn. Lifi.......! pic.twitter.com/l2TRcqBR4w