Manchester City og Everton eigast við í 12. umferð ensku úrvalsdeildarinnar á Etihad-leikvanginum en leikurinn hefst klukkan 14:00.
Hinn 19 ára gamli Cole Palmer er í byrjunarliði Manchester City og þá er Phil Foden einnig í liðinu. Kevin de Bruyne er með covid og því ekki með. Jack Grealish er frá vegna meiðsla.
Ruben Dias kemur á bekkinn og Aymeric Laporte kemur inn fyrir hann.
Lið Everton er óbreytt frá síðasta leik gegn Tottenham Hotspur.
Man City: Ederson; Walker, Stones, Laporte, Cancelo; Bernardo Silva, Rodri, Gündogan; Palmer, Sterling, Foden
Everton: Pickford; Coleman, Godfrey, Keane, Digne; Townsend, Allan, Delph, Gordon; Gray; Richarlison
Athugasemdir