Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
   mán 21. nóvember 2022 20:00
Ívan Guðjón Baldursson
Budweiser ætlar í mál við FIFA - Gefur sigurliði HM allan bjórinn
Mynd: EPA

Bjórframleiðandinn Budweiser, helsti styrktaraðili heimsmeistaramótsins, ætlar í mál við FIFA eftir að stjórnvöld í Katar bönnuðu sölu áfengis á leikvöngum HM.


Fjölmiðillinn vinsæli Nexta greinir frá þessum fréttum og tekur fram að Budweiser mun gefa allan bjórinn sem átti að selja á leikvöngum til sigurliðs HM.

Allur þessi bjór er metinn á um 75 milljónir evra og er búist við að Budweiser muni fara í mál við FIFA vegna samningsbrots.

Bjórframleiðandinn er sérstaklega óhress með að ákvörðunin hafi verið tilkynnt nokkrum dögum fyrir mót eftir fjölmörg loforð um að bjór yrði seldur á leikvöngum.


Slapp
banner
banner