Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 21. nóvember 2022 11:55
Elvar Geir Magnússon
Telmo yfirgefur ÍBV líkt og Sito (Staðfest)
Telmo Castanheira.
Telmo Castanheira.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍBV hefur tilkynnt að miðjumaðurinn Telmo Castanheira hafi ákveðið að hafna samningstilboði félagsins og ætli að reyna fyrir sér á öðrum vettvangi.

Fyrir viku síðan var staðfest að Sito myndi yfirgefa Vestmannaeyjar og nú fylgir Telmo í hans spor.

Telmo kom til ÍBV árið 2019 og hefur þessi 30 ára leikmaður leikið 110 KSÍ leiki fyrir ÍBV og skorað í þeim 10 mörk, mörg þeirra með skotum fyrir utan teig líkt og í sumar gegn FH-ingum í október.

Telmo var valinn besti leikmaður ÍBV sumarið 2019 á hans fyrsta tímabili með liðinu.

„Þetta frábæra ferðalag í Vestmannaeyjum hefur tekið enda og ég get ekki farið héðan án þess að segja hversu þakklátur ég er. Þetta voru frábær fjögur ár, þar sem að allt samfélagið lét mér líða eins og ég væri heima hjá mér. Ég vil þakka öllum sem deildu með mér stundum á þessari vegferð, leikmenn, þjálfarar, fólk í stjórn og stuðningsmenn fyrir ástina og stuðninginn," segir Telmo í tilkynningu ÍBV.

„Við upplifðum hæðir og lægðir en stóðum saman og komum ÍBV aftur í hóp þeirra bestu. Með ákvörðun minni er ég viss um að það sé kominn tími fyrir mig að vaxa í aðra átt en ég tek Vestmannaeyjar með mér í hjarta mínu."

ÍBV var nýliði í Bestu deildinni í sumar og endaði í 8. sæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner