Fotbolti.net
21.12.18 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Aðstoðarþjálfari Ítalíu tekinn við Salernitana (Staðfest)

Aðstoðarþjálfari Ítalíu tekinn við Salernitana (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Angelo Gregucci hefur sagt upp starfi sínu sem aðstoðarþjálfari Roberto Mancini hjá ítalska landsliðinu til að taka við B-deildarliði Salernitana.
Gregucci er 54 ára gamall og hefur starfað við hlið Mancini til fjölda ára. Þetta er í þriðja sinn á ferlinum sem hann tekur þó við þjálfarastarfinu hjá Salernitana, en það gerði hann 2004 og aftur 2014.

Gregucci hefur áður þjálfað Atalanta og Sassuolo til skamms tíma en lengst af var hann þjálfari Vicenza frá 2006 til 2009.

Salernitana er búið að tapa þremur leikjum í röð og situr um miðja B-deild, sjö stigum frá falli og aðeins tveimur stigum frá umspili.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.