Fotbolti.net
21.12.18 - 16:12
Elvar Geir Magnússon

Kwame Quee til Breiðabliks (Staðfest)

Kwame er sóknarsinnaður miðjumaður.

Kwame er sóknarsinnaður miðjumaður.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kwame Quee hefur gengið til liðs við Breiðablik frá Víkingi Ólafsvík. Kwame, sem er 22 ára gamall landsliðsmaður frá Sierra Leone, hefur leikið með Ólafsvíkingum síðustu tvö tímabil.
Hann skoraði 11 mörk í 21 leik í Inkasso-deildarinnar og var valinn í úrvalslið deildarinnar á Fótbolta.net. Þar að auki var hann mjög drjúgur fyrir Víkingana í bikarkeppni KSÍ en þar skoraði hann þrjú mörk í fjórum leikjum.

Kwame Quee leikur með FC Johansen í heimalandi sínu Sierra Leone en hefur nú ákveðið og söðla um og gerir nú tveggja ára samning við Breiðablik.

Gísli Eyjólfsson fór frá Breiðabliki til Mjallby á láni nýlega og Kwame gæti hjálpað til við að fylla skarðið sem hann skilur eftir sig. Að auki hafa erlend félög sýnt áhuga á að fá Willum Þór Willumsson frá Breiðabliki í vetur.

Breiðablik hafnaði í öðru sæti, bæði í Pepsi-deildinni og Mjólkurbikarnum, á liðnu tímabili.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.