Fotbolti.net
21.12.18 - 13:13
Elvar Geir Magnússon

Lovre Kalinic til Aston Villa (Staðfest)

Lovre Kalinic.

Lovre Kalinic.

Canon

Mynd: Getty Images

Birkir Bjarnason fær nýjan liðsfélaga 1. janúar, þegar vetrarglugginn opnast. Króatíski markvörðurinn Lovre Kalinic hefur gert fjögurra og hálfs árs samning við Aston Villa.

Þessi 28 ára leikmaður kemur frá Gent í Belgíu og er fyrsti leikmaðurinn sem Dean Smith, stjóri Villa, fær síðan hann tók við í október.
Kalinic var í króatíska landsliðshópnum sem fór á HM í Rússlandi í sumar og varði markið gegn Íslandi.

Þessi stóri og stæðilegi leikmaður varð fyrsti markvörður Króatíu eftir að HM.

Norðmaðurinn Örjan Nyland, núverandi aðalmarkvörður Villa, hefur fengið talsverða gagnrýni.

Aston Villa er í 8. sæti í Championship-deildinni, þremur stigum frá umspilssæti.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.