Fotbolti.net
21.12.18 - 12:56
Elvar Geir Magnússon

Valdimar Ingi í Fjölni (Staðfest)

Valdimar Ingi Jónsson.

Valdimar Ingi Jónsson.

Canon

Mynd: Fjölnir

Valdimar Ingi Jónsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við Fjölni en félagið greinir frá þessu á samfélagsmiðlum sínum.
„Valdimar er 20 ára efnilegur kantmaður með töluverða reynslu þrátt fyrir ungan aldur. Hann er uppalinn Fjölnismaður en kemur til okkar frá Víkingi R.," segir á heimasvæði Fjölnismanna á Facebook.

Hann hefur verið á láni undanfarin fjögur tímabil hjá Leikni Fáskrúðsfirði þar sem hann hefur spilað 77 leiki og skorað 10 mörk.

Valdimar stundar nám og spilar knattspyrnu með Elon University í Bandaríkjunum.

„Við bjóðum Valdimar velkominn heim í Grafarvoginn og væntum mikils af honum í framtíðinni!" segja Fjölnismenn.

Fjölnir féll úr Pepsi-deildinni á liðnu tímabili en setur stefnuna á að hafa ekki langa dvöl í Inkasso-deildinni.
Valdimar Ingi í Fjölni (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.