21.12.18 - 13:54
Elvar Geir Magnússon
Viking kaupir Axel Óskar (Staðfest)

Axel Óskar Andrésson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Axel Óskar Andrésson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Norska félagið Viking hefur keypt íslenska varnarmanninn Axel Óskar Andrésson frá Reading. Viking staðfesti þetta á heimasíðu sinni í dag.
Axel var á láni hjá Víking undir lok síðasta tímabils en hann hjálpaði liðinu að vinna norsku B-deildina og komast í úrvalsdeildina.
Axel hefur leikið með unglinga- og varaliðum Reading. Hann er fastamaður í U21-landsliði Íslands en í gær var hann valinn í A-landsliðshópinn í fyrsta skipti fyrir leikina gegn Svíþjóð og Eistlandi í Katar í janúar.

Bjarne Berntsen, þjálfari Viking, segist hæstánægður með að krækja í Axel og segir að hann hafi sýnt gæði sín á lánsdvölinni.
Hann segir Íslendinginn vera með leiðtogahæfileika og gríðarlegan metnað.
„Hann missti ekki út eina einustu æfingu þegar hann var hérna á láni," segir Berntsen og segir að Axel eigi möguleika á að fara í stærra félag í framtíðinni.