Fotbolti.net
21.12.19 - 11:37
Ívan Guðjón Baldursson

Ancelotti tekinn við Everton (Staðfest)

Ancelotti tekinn við Everton (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Carlo Ancelotti hefur verið kynntur sem nýr knattspyrnustjóri Everton og mun hann vera meðal áhorfenda er liðið mætir Arsenal í dag. Mikel Arteta, nýr stjóri Arsenal, verður einnig á áhorfendapöllunum.
Ancelotti tekur við eftir eitt og hálft ár hjá Napoli en þar áður stýrði hann bestu félagsliðum heims. Hann hefur starfað fyrir FC Bayern, Real Madrid, PSG, Chelsea, Milan og Juventus síðustu 20 ár.

Gylfi Þór Sigurðsson er því kominn með nýjan þjálfara, einn af þeim bestu í knattspyrnusögunni.

Everton hefur fengið mikið hrós fyrir að krækja í Ancelotti og verður áhugavert að sjá hvernig félaginu mun ganga undir hans stjórn.

Ancelotti skrifaði undir fjögurra og hálfs árs samning sem gildir þar til í júní 2024.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.