Fotbolti.net
21.12.19 - 14:49
Ívan Guðjón Baldursson

Andrea Katrín í Aftureldingu (Staðfest)

Andrea Katrín í Aftureldingu (Staðfest)
Canon

Mynd: Afturelding

Kvennaboltinn
Andrea Katrín Ólafsdóttir hefur samið við Aftureldingu um að leika með liðinu til næstu tveggja ára.
Andrea er 25 ára gamall miðvörður sem hefur leikið 98 leiki á Íslandsmóti og skorað þrjú mörk, hún var á mála hjá ÍR á síðasta tímabili þar sem hún lék 17 leiki og var jafnframt fyrirliði liðsins.

„Andrea Katrín styrkir okkar unga lið til muna, hún kemur inn með leiðtogahæfileika, reynslu og gæði inn í okkar hóp," segir á vefsíðu Aftureldingar.

„Við hlökkum til að sjá Andreu í rauðu næsta sumar!"

Heimild: Afturelding

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.