Fotbolti.net
21.12.19 - 22:50
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Baulað hástöfum á Havertz - Hvað er í gangi?

Kai Havertz.

Kai Havertz.

Canon

Mynd: Getty Images

Kai Havertz vissi að kvöldið yrði óþæginlegt áður en leikurinn byrjaði. Í upphitun fyrir leik gegn Hertha Berlín á miðvikudgskvöld tók hópur stuðningsmanna Bayer Leverkusen sig til og baulaði hástöfum á hinn 20 ára gamla Havertz.
Nokkrir áhorfendur hrópuðu einnig yfir völlinn, 'Þú ert hórusonur' og 'Hvað ertu að gera hérna' - setningar á þá vegu.

Havertz fékk að heyra það allan leikinn, sem endaði með 1-0 tapi Leverkusen. Það náði hámarki þegar Havertz var skipt af velli er 18 mínútur voru eftir, eftir vonbrigðarframmistöðu. Bayer Leverkusen var að tapa sínum þriðja leik í röð og hjá mörgum stuðningsmönnum var það augljóst hvar sökin lá.

Ef besti leikmaður þinn 2018-19, jafnvel besti leikmaðurinn í Þýskalandi, mætir ekki til leiks í marga mánuði, hvað hefðurðu þá til ráða?

Havertz, einn eftirsóttasti leikmaður Evrópu, skoraði 20 mörk og lagði upp sjö á síðustu leiktíð. Hann hefur ekki náð sömu hæðum á þessu tímabili. Hann hafði skorað þrjú mörk og lagt upp eitt seint í september, en hann hefur lítið sem ekkert bætt vð það síðan þá.

Raphael Honingstein, þýskur fjölmiðlamaður The Athletic, skrifar grein um Havertz og vandræði hans. Væntingarnar hjá Leverkusen fyrir þetta tímabil voru miklar, kannski of miklar.

Síðasta sumar var Havertz sagt að hann mætti ekki fara, en fjölmörg félög voru á eftir undirskrift hans. Chelsea, sem var í félagaskiptabanni, og Manchester United settu sig í samband. Leverkusen sagðist þurfa á honum að halda til að vinna þýska meistaratitilinn í fyrsta sinn í sögu félagsins. Þetta var djörf yfirlýsing sem átti að ýta hópnum út úr þægindarrammanum.

Havertz átti að leiða árásina á Bayern, Dortmund og Leipzig, félögin þrjú sem enduðu fyrir ofan Leverkusen síðasta maí. Leverkusen gerði öðrum félögum það kunnugt að fjölhæfi og glæsilegi leikstjórnandinn/skuggaframherjinn væri metinn á meira en 100 milljónir evra.

Þessi risa verðmiði og stórar yfirlýsingar Leverkusen hafa skapað væntingar sem ekki var hægt að uppfylla. Ekki af leikmanninum, og ekki af félaginu. Það er leikmaðurinn sem hefur fengið hörðustu gagnrýnina. Stuðningsmennirnir vilja trúa því að slök frammistaða hans sé vegna þess að hann er ekki að reyna af fullum krafti, hann dreymi um næsta skref. Þeim grunar að allt tal um möguleg félagaskipti hafi truflað gulldrenginn þeirra.

Fólkið næst honum neitar þessu. Það bendir á að hann sé mjög jarðbundinn og njóti góðra áhrif frá fjölskyldu sinni. Liðsfélagar hans telja einnig að viðhorf hans hafi ekki breyst - þrátt fyrir að margir, eins og til dæmis umboðsmenn, hafi reynt að hafa áhrif á hann. Síðastliðið vor barði ókunnugur maður á bílrúðu Havertz og lofaði að koma honum til Barcelona.

En það er ekki hægt að fullyrða það að þessi litla krísa hafi ekki áhrif á Havertz sálfræðilega. Hann er aðeins tvítugur eftir allt saman og er óvanur allri þessari gagnrýni eftir mjög hraðan uppgang. Hann er sagður pirraður vegna skorts á framförum hjá liðinu sem virðist ekki vera tilbúið í að berjast við liðin á toppnum.

Rudi Völler, íþróttastjóri Bayer Leverkusen, sagði að það yrði gott fyrir Havertz að taka annað tímabil hjá Leverkusen, en hefur reynst honum of mikið verkefni að móta leik liðsins eftir að besti félagi hans, Julian Brandt, fór til Borussia Dortmund. Nýir leikmenn komu frá Hoffenheim, Kerem Demirbay og Nadiem Amiri, hafa ekki náð að leysa Brandt af hólmi. Havertz hefur oft litið út fyrir að vera svolítið týndur og reynt sendingar sem ekki hafa virkað vegna lítils skilnings við liðsfélagana.

Það hjálpar ekki að hann er að gera betur en fólk heldur. Tölfræðileg greining sýnir að frammistaða hans hefur ekki versnað eins mikið og það lítur út fyrir. Sendingagæði hans og hreyfing á milli línanna hafa í raun og veru batnað. En án markanna og stoðsendinganna er litið frm hjá þessum þáttum.

„Þetta er ekki allt undir honum komið," segir Honingstein og bendir á það að liðið sé ekki nægilega gott. Hann gagnrýnir einnig leikstílinn, segir að liðið sitji of djúpt og sé of dauft á lykilaugnablikum - eins og oft síðastliðinn áratug.

Vörnin er ekki nægilega góð til þess að berjast um titilinn. Þá er einnig áhyggjumerki um að Peter Bosz sé að missa tökin á hópnum. Hann hefur verið vinsæll frá því hann tók við í janúar, en er farinn að gera það sem margir þjálfarar gera þegar þeir fara á taugum: hann hefur farið úr því að vera vinur leikmanna í það að hrauna yfir þá þegar þeir gera hlutina rangt. Það hefur haft neikvæð áhrif á liðið.

Leverkusen hafði þó betur gegn Mainz í dag með sigurmarki í uppbótartíma, og spilaði Havertz allan leikinn. Leverkusen er í sjötta sæti fyrir vetrarfrí, tveimur stigum frá topp fjórum. Liðið er úr leik í Meistaradeildinni. Tímabilið hefur verið vonbrigði hingað til og auka málefni Havertz aðeins á stressið í stjórninni.

Ef seinni hlutinn af tímabilinu fer eins og sá fyrri, þá mun verðmiði hans minnka, kannski um allt að fjórðung. Heimildarmenn nálægt leikmönnum hafa þó ekki áhyggjur af framtíðinni. Þeir trúa því að hann muni læra af þessari stöðu og koma sterkari til baka. Hugsunin er sú að það sé betra fyrir hann að upplifa fyrstu vandræðin í Leverkusen, frekar en erlendis - eða í Bæjarlandi.

Hérna má lesa greinina í heild sinni.

Í slúðrinu í dag var það sagt að Havertz væri eftirsóttur af Man City, Man Utd, Liverpool, Real Madrid og Barcelona. Liverpool er þó talið vera að leiða kapphlaupið um hann.

Sjá einnig:
Baulað á Havertz - „Þetta er ömurlegt"
Hann er aðeins tvítugur að aldri.

Hann er aðeins tvítugur að aldri.

Canon

Mynd: Getty Images

Stuðningsmennirnir bauluðu hástöfum á Havertz.

Stuðningsmennirnir bauluðu hástöfum á Havertz.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.