21.12.19 - 13:30
Ívan Guðjón Baldursson
Forlan tekinn við Penarol (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Úrúgvæska goðsögnin Diego Forlan er tekinn við sínu fyrsta starfi sem aðalþjálfari knattspyrnufélags. Hann hefur verið ráðinn til úrúgvæska meistaraliðsins Penarol.
Forlan tekur við af Diego Lopez þegar samningur hans rennur út um áramótin. Forlan tekur við afar sterku liði sem er í harðri toppbaráttu við Nacional og Progreso.
Penarol er í öðru sæti eftir fyrri hluta tímabilsins, með 34 stig eftir 15 umferðir. Nacional er á toppnum með betri markatölu og kemur Progreso í þriðja sæti, einu stigi á eftir.
Forlan er fertugur og eg spilaði fyrir Penarol tímabilið 2015-16. Hann gerði garðinn frægan hjá Manchester United en spilaði einnig fyrir Villarreal, Atletico Madrid og Inter.
Forlan skoraði 36 mörk í 112 landsleikjum á tíma sínum með úrúgvæska landsliðinu, frá 2002 til 2014.