21.12.19 - 11:23
Ívan Guðjón Baldursson
Liverpool að vinna kappið um Havertz

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images

BBC tók saman slúðurpakka dagsins og er úr nógu að taka enda styttist í að janúarglugginn opnist.
Man City, Man Utd, Liverpool, Real Madrid og Barcelona eru öll að berjast um Kai Havertz, tvítugan miðjumann Bayer Leverkusen. Liverpool er talið leiða kapphlaupið en Leverkusen vill fá 100 milljónir punda. (Sun)
Tilkynning Arsenal á ráðningu Mikel Arteta kom stjórnendum Man City að óvörum. Þeir fréttu af ráðningunni í gegnum samfélagsmiðla. (Daily Mail)
Leroy Sane, 23, er búinn að taka ákvörðun. Hann ætlar að ganga í raðir FC Bayern München. (Bild)
Mino Raiola segir að skjólstæðingur sinn Paul Pogba vilji vera áfram hjá Man Utd og vinna titla með félaginu. Raiola segir að Pogba þurfi meiri stuðning frá félaginu. (Telegraph)
Raiola bað Zinedine Zidane afsökunar fyrir að hafa ekki tekist að láta félagaskipti Pogba ganga í gegn síðasta sumar. (Star)
Framtíð Pep Guardiola hjá Man City veltur á því hversu vel mun ganga í Meistaradeildinni. (The Athletic)
Ole Gunnar Solskjær er vongóður um að fá nýja leikmenn til félagsins í janúar. Búist er við tveimur nýjum leikmönnum á Old Trafford. (Manchester Evening News)
Granit Xhaka, 27, er í viðræðum við Hertha Berlin. Arsenal vill 40 milljónir fyrir miðjumanninn. (ESPN)
Hertha er þó ekki aðeins að skoða Xhaka heldur hefur Jürgen Klinsmann þjálfari einnig áhuga á Victor Wanyama hjá Tottenham. (Telegraph)
Pierre-Emerick Aubameyang, 30, vill ólmur fara frá Arsenal til að reyna að vinna titla. (Mirror)
Wolves ætlar ekki að selja Adamaa Traore, 23, þrátt fyrir áhuga frá Tottenham. Traore varð dýrasti leikmaður í sögu Wolves þegar hann kom til félagsins í ágúst í fyrra. (Sun)
Bordeaux hefur áhuga á að fá Olivier Giroud, 33, í janúar. Giroud gæti þó verið á leið í ítölsku toppbaráttuna, til Inter. (Goal)
Zlatan Ibrahimovic gæti gengið í raðir Everton til að spila undir stjórn Carlo Ancelotti (Talksport)
Toppbaráttulið Juventus og Inter hafa áhuga á sömu leikmönnunum í ítalska boltanum. Þeir munu berjast um Dejan Kulusevski, Sandro Tonali og Federico Chiesa í janúar. (Calciomercato)
PSG er í viðræðum við Juve um kaup á þýska miðjumanninum Emre Can, 25. Leandro Paredes, 25, gæti verið sendur í ítalska boltann í staðinn. (Daily Mail)
Man City og Real Madrid eru tilbúin að berjast um Marquinhos, 25 ára varnarmann PSG sem getur einnig spilað á miðjunni. (Le10sport)
Steve Bruce setur í forgang að framlengja samning Jonjo Shelvey, 27, áður en hann skoðar nýja leikmenn til að kaupa í janúar. (Telegraph)
Chris Wilder, stjóri Sheffield United, ætlar að bæta tveimur til þremur leikmönnum við hópinn í janúar. (BBC Sheffield)
Freddie Ljungberg er nálægt því að taka við Malmö eftir að Uwe Rösler framlengdi ekki samning sinn við félagið. Arnór Ingvi Traustason er lykilmaður þar. (Sportal)
Steven Gerrard vill halda Jermaine Defoe, 37, hjá Rangers eitt ár í viðbót. (Times)