21.12.19 - 12:30
Ívan Guðjón Baldursson
Montella rekinn frá Fiorentina (Staðfest)

Þjálfaraferill Montella hefur ekki gengið sérlega vel undanfarin ár.

Mynd: Getty Images

Fiorentina er búið að reka þjálfara sinn Vincenzo Montella eftir níu mánuði í starfi.
Fiorentina tapaði 1-4 fyrir Roma í gærkvöldi og var það dropinn sem fyllti mælinn fyrir stjórn félagsins.
Fiorentina hefur gengið hörmulega á fyrri hluta tímabils og situr liðið í 14. sæti Serie A, með 17 stig eftir 17 umferðir.
Montella stýrði Fiorentina í þrjú ár frá 2012-15 en hefur síðan þá ekki enst í neinu starfi. Hann hefur verið við stjórnvölinn hjá Sampdoria, Milan og Sevilla undanfarin ár en ekki gengið sem skyldi.
„Fiorentina vill þakka Vincenzo Montella og starfsteymi hans fyrir tíma sinn í þágu félagsins og óskar þeim alls hins besta í framtíðinni. Félagið mun tilkynna nýjan þjálfara á næstu dögum," segir í yfirlýsingu frá félaginu.
Fiorentina er komið í jólafrí og spilar ekki fótboltaleik fyrr en 6. janúar.