Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
banner
   þri 22. janúar 2019 18:00
Elvar Geir Magnússon
Balotelli til Marseille (Staðfest)
Mario Balotelli.
Mario Balotelli.
Mynd: Getty Images
Sóknarmaðurinn umtalaði Mario Balotelli hefur gert samkomulag við Olympique Marseille um sex mánaða samning.

Marseille náði samkomulagi við Nice og gengur Balotelli undir læknisskoðun í fyrramálið. Hann mun fá hærri laun hjá Marseille en hann fékk hjá Nice.

Þessi 28 ára leikmaður hefur átt erfitt tímabil með Nice og ekki enn náð að skora. Hann lenti upp á kant við þjálfara liðsins, Patrick Vieira.

Samningur hans við Nice átti að renna út eftir tímabilið.

Þess má geta að Marseille og Nice eru jöfn að stigum í frönsku deildinni, sitja í 7. og 8. sæti.

Balotelli er ítalskur og hefur á ferli sínum leikið með Inter, AC Milan, Manchester City og Liverpool. Þá á hann 36 landsleiki.
Athugasemdir
banner
banner
banner