Fotbolti.net
22.01.19 - 11:42
Elvar Geir Magnússon

Flugsérfræðingur setur stórt spurningamerki við flugvélina

Piper Malibu vél.

Piper Malibu vél.

Canon

Mynd: A Piper Malibu plane

Flugsérfræðingurinn Adam Petruccione segir á Twitter að gera verði alvarlegar athugasemdir við þá ákvörðun að fljúga argentínska fótboltamanninum Emiliano Sala frá Nantes til Cardiff á Piper Malibu vél.

Hann segir að sú vél sé ekki hentug fyrir þannig flug og setur spurningamerki við að flogið hafi verið á eins hreyfils vél en ekki tveggja.

Enn er leitað að umræddri vél sem hvarf af ratsjám í gærkvöldi. Tveir einstaklingar voru um borð, flugmaður og Sala. Cardiff City var nýbúið að ganga frá kaupum á Sala og átti hann að mæta á sína fyrstu æfingu í dag.

Móðir Sala segir við argentínska fjölmiðla að vélin hafi verið frá forseta Cardiff City.

Sjá einnig:
Uppfærðar fréttir af málinu
Emiliano Sala.

Emiliano Sala.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.