Fotbolti.net
22.01.20 - 12:30
Magnús Már Einarsson

Bayern Munchen fær Odriozola á láni (Staðfest)

Bayern Munchen fær Odriozola á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Bayern Munchen hefur fengið bakvörðinn Alvaro Odriozola á láni frá Real Madrid út tímabilið.

Hinn 24 ára gamli Odriozola hefur ekki verið í myndinni hjá Zinedine Zidane þjálfara Real Madrid.

Samtals hefur Odriozola einungis leikið fimm leiki á þessu tímabili.
Odriozola kom til Real Madrid frá Real Sociedad á 40 milljónir evra sumarið 2018 en hefur ekki náð að festa sig í sessi.

Sevilla og Athletic Bilbao vildu líka fá Odriozola á láni en Bayern hafði betur í kapphlaupinu um hann.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.