Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 22. janúar 2020 21:37
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fótbolta.net mótið: Keflavík í úrslit eftir öruggan sigur
Mynd: Jón Örvar Arason
Keflavik 5 - 2 Haukar
1-0 Ari Steinn Guðmundsson ('13)
1-1 Nikola Dejan Djuric ('41)
2-1 Magnús Þór Magnússon ('61)
3-1 Ari Steinn Guðmundsson
3-2 Nikola Dejan Djuric ('73)
4-2 Jóhann Þór Arnarsson ('79)
5-2 Ari Steinn Guðmundsson ('88)

Keflavík mætti Haukum í þriðju umferð Fótbolta.net mótsins í kvöld. Leikið var í Reykjaneshöllinni.

Keflavík sigraði í kvöld, 5-2, og tryggði sér þar með í úrslitaleik í B-deild mótsins. Liðið endaði með fullt hús stiga í riðli 2.

Ari Steinn Guðmundsson skoraði þrennu fyrir Keflavík í kvöld og hefur því skorað sjö mörk í tveimur leikjum þar sem hann skoraði fjögur mörk gegn Þrótti Vogum í síðustu viku. Nikola Dejan Djuric skoraði bæði mörk Hauka í leiknum.

Haukar enda með þrjú stig í riðlinum eftir sigur á Vestra en tap gegn Þrótti Vogum.
Athugasemdir
banner
banner