Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 22. janúar 2020 18:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Leonardo Campana til Wolves (Staðfest)
Mynd: Wolves
Wolves hefur gengið frá kaupunum á Leonardo Campana og gerir við hann þriggja og hálfs árs samning, kaupverðið er óuppgefið.

Þessi nítján ára framherji er fyrsti leikmaðurinn sem Wolves krækir í í þessum félagaskiptaglugga. Campana var á mála hjá Barcelona SC í heimalandinu, Ekvador.

Á árinu 2019 skoraði Campana fjögur mörk í 21 leik fyrir Barcelona og var auk þess markahæsti leikmaður U-20 ára landsliðs Ekvador sem sigraði Suður-Ameríku keppnina í þeim aldursflokki.

Næsti leikur Wolves er gegn Liverpool sem kemur í heimsókn á Molineux annað kvöld.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner