Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
banner
   lau 22. janúar 2022 07:30
Victor Pálsson
Agbonlahor skilur ekki ákvörðun Lingard
Mynd: EPA
Gabriel Agbonlahor, fyrrum leikmaður Aston Villa, skilur ekki ákvörðun Jesse Lingard að vera áfram hjá Manchester United í sumar.

Lingard ákvað að fara ekki endanlega til West Ham þar sem hann lék í láni á síðustu leiktíð og stóð sig vel.

Lingard vildi sanna sig hjá uppeldisfélaginu en það hefur ekki gengið hingað til og eru tækifærin af skornum skammti.

Agbonlahor segir Lingard að færa sig um set og það strax í janúarglugganum.

„Hann átti að fara í sumar. Ég skil þessa stráka ekki, hvernig hann ákvað að vera um kyrrt í Manchester í sumar," sagði Agbonlahor.

„Ég veit þú vilt trúa á sjálfan þig að komast í byrjunarliðið en þú ert með Bruno Fernandes og Paul Pogba fyrir framan þig."

„Pogba hefur verið meiddur í tvo mánuði og samt fær Lingard ekkert að spila. Hann fær ekki einu sinni mínútur af bekknum. Hann þarf að fara í janúar."
Athugasemdir
banner
banner
banner