Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 22. janúar 2022 10:00
Victor Pálsson
Chelsea að kaupa bakvörð Derby
Mynd: Getty
Evrópumeistarar Chelsea eru að kaupa efnilegan bakvörð en það er Sky Sports sem greinir frá þessum fregnum.

Leikmaðurinn umtalaði heitir Dylan Williams og er 18 ára gamall en hann er fæddur árið 2003.

Wayne Rooney, stjóri Derby, staðfesti það í gær að félagið væri búið að samþykkja tilboð frá ónefndu úrvalsdeildarfélagi.

Sky greinir nú frá því að það sé Chelsea og mun leikmaðurinn skrifa undir á næstunni.

Ólíklegt er að Williams verði mikið með aðalliði Chelsea en hann á að baki sex leiki í Championship-deildinni með Derby.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner