Fotbolti.net
22.01.22 - 06:00
Victor Pálsson

Queiroz heimtar meira frá framherjum Egyptalands

Queiroz heimtar meira frá framherjum Egyptalands
Canon

Mynd: EPA

Carlos Queiroz, landsliðsþjálfari Egyptalands, hefur áhyggjur af markaskorun liðsins sem leikur nú í Afríkukeppninni.
Egyptaland er með einn heitasta sóknarmann heims í sínum röðum en það er Mohamed Salah sem spilar með Liverpool.

Salah skoraði í öðrum leik Egyptalands í riðlakeppninni en liðið vann Súdan 1-0 á miðvikudag og er komið í 16-liða úrslit.

Queiroz er þó áhyggjufullur fyrir úrslitakeppnina en hann heimtar meira frá sínum sóknarmönnum og þar á meðal Salah.

„Ég lofa ykkur því að alveg frá morgni til kvölds þá munum við æfa færanýtinguna," sagði Queiroz.

„Þeir þurfa að skora fleiri mörk. Að spila góðan fótbolta er ekki nóg - við þurfum að bæta við mörkum og vera afslappaðri í okkar leik."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.