Aymeric Laporte, miðvörður Manchester City, var meðal bestu manna vallarins í 1-1 jafntefli gegn Southampton í dag.
Laporte gerði eina mark City í leiknum eftir aukaspyrnu Kevin De Bruyne á 65. mínútu.
Tæpum stundarfjórðungi eftir jöfnunarmarkið fór Stuart Armstrong með takkana í Aymeric Laporte og fékk miðjumaðurinn gult spjald fyrir. Atvikið var skoðað í VAR og ákveðið að breyta ekki ákvörðun dómarans.
Laporte birti mynd af sárinu að leikslokum og þakkaði fyrir minjagripinn.
Sjáðu atvikið
Well thanks for the souvenir lol pic.twitter.com/okzDpDytXt
— Aymeric Laporte (@Laporte) January 22, 2022
Athugasemdir