Fotbolti.net
22.02.14 - 13:00
Hafliði Breiðfjörð

Upptaka - Víðir Sig: Mest heillandi að fá Englendingana

Auglýsing
Víðir Sigurðsson skrifar bækurnar Íslensk knattspyrna.

Víðir Sigurðsson skrifar bækurnar Íslensk knattspyrna.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Á morgun klukkan 11:30 verður dregið í riðla fyrir undankeppni EM 2016 í Frakklandi. Ísland er í 5. styrkleikaflokki í drættinum. Víðir Sigurðsson blaðamaður á Morgunblaðinu var í spjalli í útvarpsþættinum Fótbolta.net í hádeginu.
Snýst um að vera heppnir með lið úr þriðja og fjórða flokki
,,Það munar náttúrulega sáralitlu að við værum uppi í fjórða flokki í staðinn fyrir Hvít Rússa,\" sagði Víðir. ,,Ísland er í næsta sæti við að fara upp og það munaði mjög litlu. Það breytir ekki öllu að vera í 5. sæti og fer svolítið eftir hvernig heppnin verður með okkur á morgun.\"

Ísland fékk draumadrátt í undankeppni HM þar sem við mættum Noregi úr efst styrkleikaflokki, Sviss úr öðrum og svo Albaníu, Kýpur og Slóveníu.

,,Það væri draumurinn að fá áþekkan riðil,\" sagði Víðír. ,,Það sem er öðruvísi núna er að það er búið að stækka keppnina, það fara 24 lið í Evrópukeppni en ekki 16 eins og hefur verið. Það þýðir allt aðrir möguleikar. Tvö efstu liðin fara beint og liðin í þriðja sæti fara í umspil, og eitt þeirra fer meira að segja beint. Þetta snýst um hversu heppnir við verðum með liðin sem við fáum úr öðrum, þriðja og fjórða flokk. Í raun og veru er allt í lagi að fá eitt dúndurgott lið úr fyrsta flokki, Spán, Þýskaland, Holland eða England og fá svo eitthvað hagstætt úr hinum.\"

Mest heillandi að fá Englendinga loksins
Enska liðið er alltaf vinsælast hjá Íslendingum en hefur ekki komið upp úr hattinum í undankeppnunum áður. Liðin mættust síðast árið 2004 í vináttuleik á Borgarleikvangnum í Manchester.

,,Við höfum aldrei spilað alvöru leik við England og það væri skemmtilegast ef við gætum fengið þá í fyrsta flokki. Ef maður væri að horfa beint á möguleikana og vildi vinna riðilinn þá myndi maður segja Grikkland eða Bosnía, en það væri mest heillandi að fá Englendingana loksins.\"

Eftir að hafa verið heppnir með riðil í undankeppni HM þar sem mótherjarnir voru veikir, hvernig metur Víðir möguleikana núna, er meiri möguleiki á að fá erfiðari mótherja?

,,Það er aðeins meiri hætta á að riðilinn verði sterkari. Við gætum fengið hálfgerðan dauðariðil, Spán, Belgíu, Serbíu og eitthvað af sterkari liðunum úr fjórða flokki, Svartfjallaland eða Armeníu. Það væri virkilega erfitt. En svo gætum við fengið Grikklandi, Írland, Noreg og Eistland. Það væri riðill sem væri galopinn og öll liðin í slag. En ekki gleyma að liðin úr sjötta flokki geta flækst fyrir okkur líka. Ef við fengjum Kazakhstan til dæmis. Það eru allir möguleikar í þessu. Við gætum líka fengið Spán, Króatíu, Svartfjallaland og Serbíu og þá værum við í ansi þungum málum.\"

Munum ætlast til að liðið verði í baráttu um þriðja sæti
Ísland komst í umspil um sæti á Heimsmeistaramótinu þar sem við töpuðum fyrir Króatíu og nú er búið að stækka Evrópumótið. Margir af leikmönnum Íslands hafa verið inn og út úr sínum liðum núna. Hvaða kröfur megum við Íslendingar gera til liðsins?

,,Við gerum það náttúrulega þegar búið er að draga en fyrirfram getum við sagt að hvernig sem þetta æxlast munum við ætlast til þess að liðið verði í baráttu um þriðja sætið í sínum riðli í það minnsta. Við getum aldrei fengið svo hroðalegan riðil að við ættum enga möguleika. Sú staða mun aldrei koma upp.\"

Tel ekki miklar líkur á að Eiður Smári spili í undankeppninni
Þrátt fyrir magnað viðtal við Eið Smára Guðjohnsen á RÚV eftir seinni umspilsleikinn við Króatíu þar sem hann gaf sterklega í skyn að landsliðsferillinn sé á enda, eru menn enn að gera sér vonir um að hann haldi áfram. Hvernig metur Víðir möguleikana á að Eiður Smári verði áfram með liðinu í undankeppninni?

,,Ég held að það séu ekki miklar líkur á því,\" sagði Víðir. ,,Við vitum ekki hvað hann gerir í sumar og það fer allt eftir hvar hann spilar næsta vetur. Ef hann verður einhversstaðar að spila í fremstu röð á næsta tímabili þá sé ég ekkert því til fyrirstöðu að hann verði áfram í þessari baráttu. Það ræðst á hvað hann gerir.\"

Kjarni liðsins heldur sér næstu fjögur til sex árin
Lars Lagerback og Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfarar mynduðu kjarna leikmanna sem þeir notuðu í síðustu undankeppni. En telur Víðir möguleika á að þeir breyti liðinu mikið núna?

,,Þeir munu byggja algjörlega á þessum hópi. Þetta er einn af yngri landsliðshópum í Evrópu í dag. Strákar sem eru að komast á kjöraldur og verða á algjörum kjöraldri þegar þessi lokakeppni fer fram. Ég sé ekki farm á að það verði miklar breytingar. Eðlileg þróun á liði er alltaf þannig að það kemur einn og einn inn, einhver meiðist og einhver dettur alveg út og annar fyllir í skarðið. En þessi kjarni mun halda sér næstu fjögur til sex árin.\"

Nánar er rætt við Víði í útvarpinu hér að ofan þar sem hann ræðir um að það sé til mikilla bóta að Hannes Þór Halldórsson markvörður liðsins er kominn í atvinnumennsku og þá staðreynda að drátturinn fer fram í Nice í Frakklandi þar sem fyrsti atvinnumaður Íslands, Albert Guðmundsson er dýrkaður og dáður og er heiðursborgari.
Ísland er í 5. styrkleikaflokki.

Ísland er í 5. styrkleikaflokki.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víðir á ekki von á Eiði Smára í næstu undankeppni.

Víðir á ekki von á Eiði Smára í næstu undankeppni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víðir telur að Lars Lagerback muni halda sig við sama kjarnann í liðinu.

Víðir telur að Lars Lagerback muni halda sig við sama kjarnann í liðinu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Úr síðustu viðureign Englands og Íslands, í Manchester árið 2004. Emile Heskey og Jóhann Birnir Guðmundsson eigast við.Víðir vill fá Englendinga úr hattinum á morgun.

Úr síðustu viðureign Englands og Íslands, í Manchester árið 2004. Emile Heskey og Jóhann Birnir Guðmundsson eigast við.Víðir vill fá Englendinga úr hattinum á morgun.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.