Fotbolti.net
22.02.19 - 09:30
Magnús Már Einarsson

Aaron Spear, Issac Freitas og Djordevic í Vestra (Staðfest)

Aaron Spear í leik með ÍBV á sínum tíma.

Aaron Spear í leik með ÍBV á sínum tíma.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vestri hefur fengið þrjá nýja leikmenn til liðs við sig fyrir átökin í 2. deildinni í sumar. Um er að ræða þá Dejan Djordevic, Isaac Freitas og Aaron Spear.
Aaron Spear er enskur framherji sem þekkir til á Vestfjörðum eftir að hafa skorað sjö mörk í átján deildar og bikarleikjum með BÍ/Bolungarvík árið 2014.

Hinn 25 ára gamli Spear hefur einnig leikið með ÍBV og Víkingi R. á ferlinum en undanfarin ár hefur hann verið í neðri deildunujm í Svíþjóð.

Djordevic er kantmaður og framherji en hann hefur á sínum ferli spilað í Serbíu og á Möltu.

Issac Freitas kemur frá Brasilíu og hann er fæddur árið 1989. Issac er leikmaður sem getur spilað sem kantmaður og sem bakvörður. Issac kemur til Vestra frá UMEA í Svíþjóð.

„Knattspyrnudeild Vestra lýsir yfir mikilli ánægju með að hafa náð samningum við þessa leikmenn og býður þá velkomna vestur á firði," segir á Facebook síðu Vestra.

Vestri endaði í 3. sæti í 2. deildinni í fyrra en liðið hefur leik í Lengjubikarnum í kvöld ÍR í Egilshöll. klukkan 21:00.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.