Fotbolti.net
22.02.19 - 15:37
Magnús Már Einarsson

KFG bætir við sig fjórum mönnum (Staðfest)

Snorri Páll Blöndal.

Snorri Páll Blöndal.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KFG hefur fengið fjóra nýja leikmenn til liðs við sig fyrir átökin í 2. deildinni í sumar en það eru Antonio Tuta, Snorri Blöndal, Atli Dagur Ásmundsson og Goran Jovanovski.

Antonio er 23 ára gamall markvörður frá Króatíu en hann varði mark Snæfells í 4. deildinni í fyrra.
Snorri er 24 ára miðjumaður sem kemur frá Stjörnunni en hann spilaði meðal annars fjóra leiki þegar liðið varð Íslandsmeistari árið 2014.

Snorri spilaði síðast með Gróttu í 2. deildinni fyrir tveimur árum síðan.

Atli er tvítugur miðjumaður sem spilaði sextán leiki með Leikni Fáskrúðsfirði í fyrra.

Goran er 38 ára varnarmaður frá Serbíu en hann hefur spilað á Íslandi síðan árið 2011. Goran spilaði meðal annars með Keflavík í Pepsi-deildinni sem og BÍ/Bolungarvík í næstefstu deild. Hann hefur einnig leikið með Skallagrími, Ægi, KFR og Birninum.
Atli Dagur Ásmundsson með skot að marki í leik með Leikni Fáskrúðsfirði.

Atli Dagur Ásmundsson með skot að marki í leik með Leikni Fáskrúðsfirði.

Canon

Mynd: Raggi Óla

Goran Jovanovski (til hægri).

Goran Jovanovski (til hægri).

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.