Fotbolti.net
22.02.20 - 16:37
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Byrjunarlið Leicester og Man City: Þrjár breytingar á báðum liðum

Fernandinho kemur inn í vörnina hjá Man City.

Fernandinho kemur inn í vörnina hjá Man City.

Canon

Mynd: Getty Images

Ríkjandi Englandsmeistarar Manchester City fara í heimsókn til Leicester í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.
Þetta eru liðin í öðru og þriðja sæti deildarinnar. Man City er fjórum stigum á undan, en það er svo gott sem ómögulegt að ná toppliði Liverpool, sem er með ótrúlega 22 stiga forystu.

Heimamenn í Leicester gera þrjár breytingar á byrjunarliði sínu frá markalausa jafnteflinu gegn Úlfunum um síðustu helgi. Christian Fuchs kemur inn ásamt Dennis Praet og Kelechi Iheanacho. Ayoze Perez, Harvey Barnes og Hamza Choudhury detta úr liðinu.

Hjá Manchester City kemur Riyad Mahrez inn fyrir Gabriel Jesus, Gundogan fyrir David Silva og Fernandinho fyrir Otamendi. City vann West Ham mjög sannfærandi síðasta miðvikudag.

Leikurinn hefst klukkan 17:30 og hér að neðan má sjá bæði byrjunarlið.

Byrjunarlið Leicester: Schmeichel, Pereira, Evans, Soyuncu, Fuchs, Chilwell, Praet, Tielemens, Maddison, Iheanacho, Vardy.
(Varamenn: Ward, Justin, Morgan, Albrighton, Barnes, Perez, James)

Byrjunarlið Man City: Ederson, Walker, Fernandinho, Laporte, Mendy, Rodri, De Bruyne, Gundogan, Mahrez, B Silva, Aguero.
(Varamenn: Bravo, Stones, Jesus, D Silva, Cancelo, Otamendi, Foden)

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.