Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 22. apríl 2021 20:10
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Lyon óskar Söru til hamingju - Verður á Íslandi næstu mánuði
Sara vann Meistaradeildartitilinn með Lyon á síðustu leiktíð.
Sara vann Meistaradeildartitilinn með Lyon á síðustu leiktíð.
Mynd: Getty Images
Sara Björk Gunnarsdóttir, landsliðsfyrirliði íslands, er barnshafandi. Hún greindi frá því á samfélagsmiðlum í gær.

Hún og Árni Vilhjálmsson, sóknarmaður Breiðablik, eiga von á sínu fyrsta barni saman.

„Jæja lítur út fyrir að við verðum þrjú í nóvember. Það sem við hlökkum til," skrifar Sara við mynd á samfélagsmiðlum.

Hin þrítuga Sara Björk er farsælasta fótboltakona sem Ísland hefur átt. Hún er uppalin í Haukum en spilaði einnig með Breiðablik hér á landi. Hún spilaði með Rosengård í Svíþjóð og Wolfsburg í Þýskalandi áður en hún gekk í raðir franska stórliðsins Lyon á síðasta ári.

Félagslið hennar Lyon óskar henni til hamingju á vefsíðu sinni í dag. Þar segir jafnframt að Sara verði á Íslandi með fjölskyldu sinni á næstu mánuði.

Á sínu fyrsta tímabili með Lyon varð Sara Evrópumeistari þar sem hún skoraði í úrslitaleiknum gegn sínu fyrrum félagi, Wolfsburg.

Það er Evrópumót á næsta ári og er Ísland á meðal þáttökuþjóða. Sara er mikilvægasti leikmaður íslenska liðsins en mótið fer fram 6. til 31. júlí 2022.
Athugasemdir
banner