Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 22. maí 2020 14:15
Magnús Már Einarsson
PSG leggur fram tilboð í Icardi
Mynd: Getty Images
PSG hefur boðið 44,7 milljónir punda í Mauro Icardi framherja Inter. 8,9 milljónir punda gætu bæst við í árangurstengdum greiðslum.

Icardi hefur verið á láni hjá PSG síðan síðastliðið sumar en þá var samningur á milli félaganna um möguleg kaup á 62,7 milljónir punda.

Eftir kórónaveiruna ætlar PSG hins vegar að freista þess að fá Icardi á lægri upphæð.

Hinn 27 ára gamli Icardi skoraði 20 mörk í 28 leikjum fyrir PSG áður en hlé var gert vegna kórónaveirunnar.

Inter gæti misst framherjann Lautaro Martinez til Barcelona í sumar en félagið vonast hins vegar til að fá Edinson Cavani frítt frá PSG þegar samningur hans rennur út.
Athugasemdir
banner
banner
banner