Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   sun 22. maí 2022 12:10
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Frank segir að Leeds eigi skilið að vera í úrvalsdeildinni
Mynd: Getty Images

Leeds getur fallið niður í Championship deildina í dag. Liðið heimsækir Brentford en Leeds er í fallsæti með jafn mörg stig og Burnley sem er í sætinu fyrir ofan.


Burnley fær Newcastle í heimsókn en Burnley er með mun betri markatölu en Leeds svo sigur gulltryggir Burnley þátttöku í úrvalsdeildinni á næstu leiktíð.

Thomas Frank stjóri Brentford hrósaði Leeds liðinu á blaðamannafundi.

„Mér finnst þeir henta úrvalsdeildinni, ég er ekki að segja að þeir henti henni betur en Everton og Burnley. Ef einhver myndi velja sér top 20 úrvalsdeildarfélög í sögunni þá er ég nokkuð vissu um að þeir myndu velja Leeds, ekki svo viss um að þeir myndu velja Brentford," sagði Frank.

Allir leikirnir hefjast kl 15 og það verður allt í beinni lýsingu á Fótbolta.net.


Athugasemdir
banner
banner
banner