Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 22. maí 2022 13:10
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lögregla kölluð til á hótel Liverpool liðsins
Mynd: EPA

Liverpool getur orðið enskur meistari með sigri á Wolves í dag og Aston Villa nái að stríða Manchester City.


Einhverjir óprúttnir aðilar reyndu hvað þeir gátu til að koma í veg fyrir það með því að halda leikmönnum Liverpool vakandi í nótt. Leikurinn fer fram í Liverpool en liðið var komið saman á hótel þar í bæ.

Í nótt var skotið upp flugeldum í nágrenni við hótelið og lögreglan var kölluð til. Lögreglan fann skottertuna og einn maður var yfirheyrður á staðnum og sendur heim, enginn var handtekinn.

Allir leikir dagsins hefjast kl 15 og Fótbolti.net mun fylgjast grant með gangi mála.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner