Það átti skondið atvik sér stað í leik Liverpool og Wolves á lokadegi enska úrvalsdeildartímabilsins í dag.
Þegar nokkrar mínútur voru eftir af umferðinni var Liverpool 2-1 yfir gegn Úlfunum og þurfti mark frá Aston Villa, sem var 3-2 undir gegn toppliði Manchester City eftir að hafa komist tveimur mörkum yfir.
Allt í einu brutust út fagnaðarlæti á Anfield þegar áhorfendur fréttu að Aston Villa hafði tekist að jafna gegn City og staðan þar væri orðin 3-3. Liverpool var þá aðeins nokkrum mínútum frá Englandsmeistaratitlinum.
Það voru þó sannkallaðar falsfréttir því þriðja mark Villa leit aldrei dagsins ljós. Fagnaðarlætin entust því ekki lengi, eða rétt tímann sem það tók áhorfendur að skoða símana.
Sjón er sögu ríkari og má sjá atvikið hér fyrir neðan.