Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 22. maí 2022 20:40
Ívan Guðjón Baldursson
Zlatan labbaði inn á völlinn með vindil og kampavín
Mynd: EPA

Sænska goðsögnin Zlatan Ibrahimovic vann Ítalíumeistaratitilinn með AC Milan í dag og var þetta í fyrsta sinn sem félagið vann titilinn mikilvæga síðan 2011.


Zlatan spilaði síðustu 20 mínúturnar í 0-3 sigri gegn Sassuolo í dag en var aðalmaðurinn í fagnaðarlátunum að leikslokum.

Tugþúsundir stuðningsmanna fögnuðu honum ásamt öllum leikmönnum Milan þegar hann gekk aftur á völlinn fyrir fagnaðarlætin.

Zlatan hélt á kampavínsflösku sem hann opnaði fyrir framan stuðningsmenn og var með vindil í kjaftinum. Þessi mikli meistari þarf að viðhalda ákveðinni ímynd, hann verður 41 árs í haust.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner