Fotbolti.net
22.05.26 - 14:30
Elvar Geir Magnússon

Pep himinlifandi með að fá skilaboð frá Sir Alex

Pep Guardiola.

Pep Guardiola.

Canon

Mynd: EPA

Í dag staðfesti Manchester City þær fréttir að Pep Guardiola, einn besti stjóri fótboltasögunnar, muni láta af störfum eftir lokaumferðina á sunnudaginn.

Guardiola segist hafa átt í miklum erfiðleikum með að ræða við leikmenn sína þegar hann tilkynnti ákvörðunina.
Guardiola orðlaus eftir ákvörðun City
TENGT EFNI

Guardiola orðlaus eftir ákvörðun City

„Ræðan sem ég hélt var hreinasta hörmung, algjör hörmung. Ég var svo stressaður, meira en nokkru sinni fyrr," segir Guardiola.

Hann segir að hann muni nú taka sér frí frá þjálfun og ekki taka við öðru félagsliði strax.

Hann segist hafa fengið skilaboð frá fjölda einstaklinga en honum þyki sérstaklega vænt um að hafa fengið skilaboð frá Sir Alex Ferguson, sem er goðsögn hjá Manchester United sem sigursælasti stjóri í sögu félagsins.

„Ég mun hringja í hann, það er klárt. Hann óskaði mér til hamingju með árangurinn, fyrir það sem við áorkuðum. Það hefur mikla þýðingu fyrir mig. Hann er sá besti í þessu landi. Ég er svo ánægður."
Sir Alex Ferguson.

Sir Alex Ferguson.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.